Bóka bás

Val á básaleigu- Það eru tvær leiðir í boði, annars vegar Hefðbundin leiga og hins vegar Lúxus leiga.

 

Innifalið í Hefðbundinni básaleigu: 26% söluþóknun

Þú bókar almennan eða herra bás. Þú velur lengd tímabils 7,14,21 eða 28 daga. Þú velur upphafsdag leigu og hvaða bás þú vilt. Næst fyllir þú út persónuupplýsingar og greiðir. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú ferð inn á "Mitt Riteil".

Þú mætir til okkar eftir að þú hefur skráð vörurnar þínar inn á "Mitt Riteil" og færð afhenta verðmiða og merkibyssu. Þú ferð með vörurnar þínar inn í afmarkað rými þar sem þú hefur aðgang að fataslá, herðartrjám, merkimiðum, þjófavörnum (yfir 1.500kr) og gufuvélum.

Síðan setur þú vörurnar þínar í þinn bás. Starfsfólk Ríteil reynir eftir fremsta megni að halda básnum snyrtilegum en við mælum með að þú mætir reglulega, til að fylla á og fylgjast með básnum þínum og sækir að lokinni básaleigu.

 

Innifalið í Lúxus leigu:  46% söluþóknun

Þú bókar almennan eða herra með lúxusþjónustu. Þú velur lengd tímabils 28, 35 eða 42 daga. Þú velur upphafsdag leigu og hvaða bás þú vilt. Næst fyllir þú út persónuupplýsingar og greiðir. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú ferð inn á "Mitt Riteil".

Við komum til þín og sækjum vörurnar, annaðhvort verðleggur þú vörurnar eða við gerum það fyrir þig (nánari upplýsingar í "Ferlið mitt"). Við setjum verðmiða og þjófavarnir(yfir 1.500kr) á vörurnar, gufustraujum, komum vörum snyrtilega fyrir á básnum þínum, fyllum á básinn reglulega, tökum til daglega, tökum niður bás í lokin, pökkum vörum og geymum í allt að 7 daga án gjalds.