Almennir skilmálar
Þjónusta sem Ríteil býður upp á- Ríteil leigir út bása til að selja notaðan fatnað og fylgihluti. Hver viðskiptavinur fær afnot af bás með fataslá og hillu og eins má setja hluti í sameiginleg svæði eins og pláss leyfir.
Við erum með sér svæði fyrir skó, töskur og fylgihluti og sameiginlega slá fyrir þykkar yfirhafnir.
Ríteil er með bása fyrir alla. Eins erum við með sér svæði fyrir Herrabása og eingöngu fara herraföt á þá bása.
Ríteil er með afmarkað herbergi þar sem básaleigjandi getur komið og sett upp og tekið vörurnar sínar niður í ró og næði. Í herberginu er að finna slár, herðartré (fullorðins, buxna og barna), merkimiða, þjófavarnir, límrúllur og gufuvélar.
Hver básaleigjandi ber ábyrgð á sínum bás. Alltaf er hægt að koma og fylla á bása og við mælum með að taka myndir af vörum og auglýsa á samfélagsmiðlum. Starfsfólk Ríteil reynir eftir fremsta megni að halda básum sem snyrtilegustum.
Við hjá Ríteil erum fyrsta hringrásar búðin á Íslandi sem býður upp á heimsækingar þjónustu innan höfuðborgarsvæðisins. Þú byrjar á því að bóka bás og velja básaleigu, lágmarks básaleigja fyrir þessa Lúxus þjónustu eru fjórar vikur. Ef þú ert með ákveðna verðhugmynd um það hvað hver vara eigi að kosta þá ferðu inná „Mitt Riteil“ og skráir vörur með góðri lýsingu, stærð og verð t.d. Svört Andrea kápa M 15.000 kr. Annars vegar er hægt að pakka öllu saman, og setja vörur sem eiga að vera á sama verði í sér poka/kassa og merkja t.d. 8 flíkur saman 3000kr hver vara, 14 flíkur 12.000kr hver vara. Þriðji kosturinn er að Ríteil ákveði verðlagningu á vöru. Ef að þú ákveður að starfsfólk Ríteil verðleggi vöru þá veitið þið okkur skilyrðislaust leyfi til að ákveða verð á hverja vöru. Þú verður að senda okkur tölvupóst um hvaða leið á verðlagningu þú velur.
Við mætum heim til þín á höfuðborgarsvæðinu og sækjum vörurnar a.m.k viku fyrir fyrsta dag básaleigu, þú færð sendan tölvupóst um það hvenær við sækjum vörurnar. Vörur eru sóttar á milli kl. 11:00 og 18:00. Að sjálfsögðu er velkomið að skutla vörunum til okkar að smáratorgi 3 og við tökum við og græjum.
Við skráum hverja vöru inna þitt svæði nema básaleigjandi vilji gera það sjálfur, við setjum á herðartré, yfirförum vöru og gufum ef þörf eru á, verðmerkjum, þjófamerkjum og setjum á básinn. Það eina sem þú þarft að gera er að fylgjast með sölunni þinni á „Mitt Riteil“. Söluþóknun fyrir Lúxus leigu er 46%. Í lok básaleigu göngum við frá vörunum sem eftir eru og pökkum þeim niður og geymum þær í allt að 7 daga þér að kostnaðarlausu.
Ef vörur eru ekki sóttar innan þess ramma teljast þær eign Ríteil sem selur þær áfram og gefur xx hluta til góðgerðarmála. Á fjögurra mánaða fresti munum við tilkynna hvaða góðgerðarsamtök salan fer til hverju sinni og hægt er að finna það undir Fréttir. Ef að þú vilt gefa óseldar vörur í góðgerðarstarfsemi þá þarft þú að senda okkur tölvupóst fyrir lok básaleigu.
Afbókun á bás- Ef að þú getur ekki nýtt þér básinn þarf afbókun að berast með að lágmarki 14 daga fyrirvara, fyrir fyrsta dag leigu til að eiga rétt á endurgreiðslu.
Leigutímabil- Leigutímabil fyrir Almenna básaleigu er frá 7 dögum til 28 daga. Ef þú vilt framlengja leigutímabili þarf að bóka básinn aftur á riteil@riteil.is. Ef básaleiga er bókuð yfir tímabil þar sem lokað er í verslun eða frídagar eru, telja sá dagar ekki með í heildardögum tímabils. Ef engar vörur eru komnar í verslun kl 14 á fyrsta degi básaleigu og básaleigjandi hefur ekki haft samband, þá er Ríteil heimilt að endurleigja básinn.
Fyrir Lúxus básaleigu er leigutímabil frá 28 daga til 42 daga.
Breytingar á verði eða afsláttur- Alltaf er hægt að breyta verðum er og er það gert inn á “Mitt Riteil” undir “vörur”, þar velurðu vöruna og breytir verði. Ef þú breytir verði á vöru þarf að koma sem fyrst í verslun og fá nýjan merkimiða til að setja á vöruna. Verð vöru uppfærist strax í sölukerfinu og því selst varan samkvæmt því. Miðar sem búið er að strika yfir eru ógildir og seljast samkvæmt verði í sölukerfi.
Ef þú vilt gefa afslátt á vörum í bás meðan á leigutímabilinu stendur er best að hafa samband við verslun eða í gegnum netfangið riteil@riteil.is og við setjum afslátt á básinn. Við erum með 15%, 25%, 30%, 50% og 70% afsláttarmiða til merkingar.
Ef þú vilt ekki setja ákveðnar vörur á afslátt getur þú fjarlægt þær úr sölu áður en þú virkjar afsláttinn.
Skráning á söluvörum- Þegar þú hefur skráð þig inn á „Mitt Riteil“ skráir þú vörur með því að fara í „vörur“ og ýta á „bæta við vöru“. Þú lýsir flíkinni eða vörunni þinni eins og þér þykir best t.d. „Svartur Andrea samfestingur M“ og síðan skráir þú það verð sem þér finnst æskilegt. Við mælum með að setja myndir af vörum til að auglýsa vöruna betur á vefnum okkar.
Auglýsingar á vörum- Starfsfólk Ríteil hvetur básaleigjendur til að taka myndir og auglýsa vörur og básanúmer á samfélagsmiðlum og á facebook síðunni okkar Riteil - til sölu.
Þjófavarnir, þjófnaður og skemmdir á vörum- Þjófavarnir eru í boði fyrir allar vörur verðlagðar 1.500kr og meir ,vöruverndunarhlið er við útgang verslunar og myndavélar eru á veggjum. Eins er Starfsfólk Ríteil ávallt með opin augu fyrir búðarþjófnaði. Ríteil ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum né skemmdum vörum. Verði vörur fyrir vatns- eða eldstjóni í tilfelli af eldsvoða eða vatnsskaða er Ríteil ekki bótaskyld. Innbústrygging básaleigjanda bætir hugsanlega bruna/vatnsskaða eða þjófnað – Ríteil mælir með að básleigjandi hafi samband við sitt tryggingarfélag til að fá frekari upplýsingar um það.
Eignaréttur og vöruskilmálar- Básaleigjandi er að öllu leyti ábyrgur fyrir sínum bás og vörunum sem í honum eru. Óheimilit er að selja falsaðar, ólöglegar, skaðlegar/hættulegar eða shein vörur í Ríteil. Vörur sem verslun telur ekki við hæfi geta verið fjarlægðar af starfsmönnum án viðvörunar.
Ríteil áskilur sér rétt að hafna uppsetningu eða fjarlægja vörur úr sölu meðan á sölutímabili stendur ef starfsfólk telur vöru ekki mæta kröfum Ríteil. Þetta á við um til dæmis ástand vöru, hvort varan sé hrein, heilleg, götót, ónýt eða gölluð að einhverju leyti. Auglýsingar, nafnspjöld eða annarskonar markaðssetning er ekki leyfileg í sölurými Ríteil.
Básaleiga Ríteil er með það að markmiði að endurselja notaðar vörur sem nýtast aftur og aftur, og minnka þar með fatasóun.
Viðskiptavinir sem selja vörur í atvinnuskyni er ekki heimilt að bóka fleiri en eitt sölurými ef um sölu á nýjum vörum er að ræða, aðilar sem selja nýjar vörur í atvinnuskyni bera ábyrgð á því að gefa upp réttar upplýsingar til skatts. Taka þarf fram við bókun ef selja á vörur frá VSK-skráðu fyrirtæki. Verði viðskiptavinur uppvís að því að brjóta þessa skilmála getur samningi hans verið rift og sölurými tæmt án endurgreiðslu á leiguverði.
Vara í Ríteil er keypt í því ástandi sem hún er í, það er á ábyrgð kaupanda að skoða ástand vöru áður en hún er keypt. Starfsfólk hefur ekki heimild til að taka við vöru eftir að hún hefur verið keypt, gefa afslátt eða breyta verði. Ekki er hægt að skila vörum í Ríteil undir neinum kringumstæðum.
Skipulag, áfylling og hámarksvörur á bás- Básaleigjandi er ábyrgur fyrir sínum bás á meðan á leigu stendur. Starfsfólk Ríteil tekur til í básum eftir fremsta megni. Við mælum eindregið með að þú komir annað slagið að fylla á bás og skipuleggja hann eftir þinni hentisemi. Í Ríteil er mælt með að hafa ekki fleiri en 60 flíkur á slá í hvert sinn. Það eykur sölu að viðskiptavinir geti skoðað flíkur á aðgengilegan hátt. ATH ef þú ert með Lúxus þjónustu þá sér starfsfólk Ríteil alfarið um þetta.
Tapað/Fundið- Ef að vara finnst án merkimiða þá er hún sett á „tapað/fundið“ svæði Ríteil. Básaleigjendur geta alltaf fengið að skoða svæðið ef vara týnist á meðan básaleigu stendur, við geymum vörur án merkimiða í „tapað/fundið“ í 15 daga eftir það telst hún eign Ríteil. Ef starfsfólk rekst á vöru sem er með merkimiða eftir básaleigu er lokið sendum við viðkomandi tölvupóst er þá hægt að sækja vöruna innan 7 daga, eftir það telst hún eign Ríteilog verður varan seld og söluhagnaður fer til góðgerðamála.
Í lok básaleigu-
Almenn básaleiga: Í lok básaleigu, á síðasta degi sölu, kemur þú að ganga frá básnum þínum og sækja vörur sem eftir eru. Mán-Fös kemur þú klukkan 17:00 en klukkan 16:00 um helgar. Næsti básleigjandi á rétt á básnum klukkustund fyrir lokun daginn áður en hans básaleiga hefst.
Ef vörur eru ekki sóttar innan þess ramma teljast þær eign Ríteil sem selur þær áfram og gefur allan ágóða söluhagnaðar til góðgerðarmála. Á fjögurra mánaða fresti munum við tilkynna hvaða góðgerðarsamtök salan fer til hverju sinni og hægt er að finna það undir Fréttir.
Mikilvægt er að þegar þú kemur að þú gefir þig fram við starfsmann í afgreiðslu og látir vita að þú sért að tæma bás. Vinsamlegast hafið skilríki meðferðis. Starfsfólk leiðbeinir básleigjanda um að sækja slá, setja vörur sínar á hana og koma með slána í niðurtektarherbergið, þar sem starfsfólk fer yfir verðmiða á vörunum og fjarlægir þjófavarnir.
Komist þú ekki á tilsettum tíma er hægt að semja við starfsfólk Ríteil fyrir klukkan 16 daginn sem básaleigu lýkur, um að tæma bás fyrir leigjanda gegn 3000kr gjaldi. Hægt er að sækja um þessa þjónustu með því að hringja í verslun okkar í síma 497-1415 eða senda tölvupóst á riteil@riteil.is Ef ekkert er um samið, tekur starfsfólk Ríteil niður básinn gegn 4000 kr gjaldi.
Starfsfólk geymir vörurnar í 7 daga að hámarki en 1.000 króna geymslugjald er innheimt fyrir hvern dag sem vörurnar eru í geymslu hjá Ríteil. Eftir þessa 7 daga eru vörurnar í eigu Ríteil. Sæki básaleigjandi ekki vörurnar sínar verða þessi gjöld dregin af söluhagnaði áður en hann er greiddur til básaleiganda.
Lúxus básaleiga: Þú hefur allt að viku til að sækja vörurnar þínar eftir að básaleigu lýkur, án gjalds. Við tökum niður básinn fyrir þig og geymum vörur í allt að 7 daga án gjalds.
Að framlengja básaleigu- Ef að þú ert með bás á leigu og vilt framlengja tímabilið annað hvort á þeim bás sem þú ert þegar með (ef að sá bás er laus) eða vilt leigja nýjan bás. Þarft þú að bóka nýtt leigutímabil í „Bóka Bás“. Ef að sama básanúmer er fyrir valinu þarf ekki að skipta um merkimiða, hins vegar ef nýtt básanúmer er valið þarf að setja nýja verðmiða á vörurnar sem tilheyra þeim bás. Viðkomandi þarf að óska eftir því að starfsfólk færi vörurnar í tölvukerfinu úr gömlu básleigunni á nýju básleiguna áður en að básaleigjandi óskar útgreiðslu á seldum vörum.
Söluhagnaður- Þegar básaleigu er lokið og þú hefur sótt vörurnar þínar sem eftir eru, ferð þú á útborgunarlista og færð greitt í síðasta lagi eftir 3 virka daga. Mikilvægt er að skrá bankaupplýsingar inn á "Mitt Riteil" svo hægt sé að greiða út söluhagnað. Eingöngu verður greitt út með millifærslu í heimabanka. Básaleigjandi með Almenna þjónustu greiðir 26% þóknun og básaleigjandi með Lúxus þjónustu greiðir 46% þóknun. Básaleigjandi sér sinn hagnað undir “minn hagnaður” á sínu svæði.