Verðlisti

 

Almenn Básaleiga

  • 7 dagar 7.990kr
  • 14 dagar 12.990 kr
  • 21 dagar 17.990 kr
  • 28 dagar 22.990 kr

Lúxus Básaleiga

  • 21 dagar 17.990 kr
  • 28 dagar 22.990 kr
  • 35 dagar 27.990 kr

Verðin sem gefin eru upp eru með virðisaukaskatti. Þóknun fyrir Almenna þjónustu (26%) og  Lúxus þjónustu (46%) verður sjálfkrafa dregin af heildarsölu áður en söluhagnaður er greiddur út til básaleigjanda.

Innifalið í verði eru herðatré ( fullorðins, buxna og barna), miðar og heftibyssa til að verðmerkja, gufuvélar til notkunar, þjófavarnir og útprentuð verð/strikamerki.


Allir básaleigjendur hafa aðgang að fataslá, hillu fyrir ofan og neðan.  Einnig eru sameiginleg sér svæði fyrir skó, fylgihluti og þykkar yfirhafnir eins og pláss leyfir. 

 

Innifalið í verði fyrir Lúxus þjónustu er allt fyrir ofan og að auki sækjum við vöruna heim til þín, setjum upp básinn, fyllum á básinn eftir þörfum, tökum til í básnum daglega og pössum upp á að allt sé snyrtilegt. Tökum niður bás í lokin, pökkum vörum og geymum í allt að 7 daga án aukagjalds. 


Af Hverju Ríteil?  


Ríteil er staðsett á frábærum stað í rúmlega 400m2 glæsilegu húsnæði. Við erum staðsett í miðjum turninum á milli Cool Kids, Arena og beint á móti Jysk og Bónus.  Það eru næg bílastæði sem og bílakjallari,  Við leggjum mikið upp úr góðri þjónustu þar sem við viljum að allir viðskiptavinir Ríteil upplifi þægilegt viðmót, góða upplifun og gott aðgengi að vörum  og Þjónustu sem Ríteil býður upp á. 

Ríteil er fyrsta búðin á Íslandi sem býður upp á tvær þjónustur.  Annars vegar: Almenna  þjónustu þar sem þú bókar bás, mætir, setur upp þínar vörur, fylgist með básnum eftir þörfum, fyllir á og kemur í lok básaleigu til að taka niður bás.

Hins vegar Lúxus þjónusta þar sem við komum til þín sækjum vörurnar, setjum verðmiða og þjófavarnir á vöruna, fyllum á básinn reglulega, tökum til daglega, tökum niður bás í lokin, pökkum vörum  og geymum í allt að sjö daga.


Hver viðskiptavinur fær afnot af bás með fataslá og hillu að ofan og neðan og eins má setja skó og fylgihluti á sér sameiginleg svæði sem gerir búðina miklu skemmtilegri og aðgengilegri.


Ríteil er fyrsta búðin sem  býður upp á sér svæði fyrir Herrafatnað, sér bása fyrir barnafatnað (og við bjóðum upp á auka hengi og hillur fyrir barnabása) og svo erum við með bása fyrir alla þ.e. að sjálfsögðu Dömur og eins er hægt að blanda í almenna bása. Dömufatnað, herrafatnað, barnaföt o.s.frv.


Ríteil býður upp á sér afmarkað herbergi þar sem þú getur sett upp vörurnar þínar í ró og næði.  Þar finnur þú allt sem þú þarft til að setja upp básinn.


Við hjá Ríteil viljum láta gott af okkur leiða og munum gefa allan söluhagnað af ósóttum vörum og vörum sem enda sem eign Ríteil til góðgerðarsamtaka.  Á fjögurra mánaða fresti munum við tilkynna hvaða samtök verða fyrir valinu og ágóði undir “Fréttir” á heimasíðunni riteil@riteil.is