Uppsetning almenn leiga

Kæri básaleigjandi,

Nú er komið að því að fara að setja upp básinn þinn.Þú átt bókaðan bás þann Sjá bókun (Mitt Riteil)

Þú mætir í verslun okkar að Smáratorgi 3 til að setja upp básinn þinn. þú hefur rétt á básnum klukkutíma fyrir lokun (18:00 á virkum dögum og laugardögum, 17:00 á sunnudögum) hægt er að koma aðeins fyrir það og setja upp!:) eða klukkan 10:00 sama dag og leigutímabil hefst.

Ef þessar tímasetningar henta ekki má senda okkur tölvupóst á riteil@riteil.is  eða hringja í síma: 4971415 og við finnum út úr því. Við komuna afhendum við þér verðmiða og merkibyssu, síðan ferð þú inn í afmarkað rými þar sem þú hefur aðgang að fataslá, merkimiðum, þjófavörnum, herðartrjám (venjuleg,buxna og barna) og gufuvélum til þess að undirbúa þínar vörur í rólegheitum. 

Síðan setur þú vörurnar þínar í þinn bás. Starfsfólk Ríteil reynir eftir fremsta megni að halda básnum snyrtilegum en við mælum með að þú mætir reglulega, til að fylla á og fylgjast með básnum þínum.

Kær kveðja Ríteil